Samtök atvinnulífsins efna til kosningafundar með formönnum flokka í dag þar sem ljósi er varpað á framtíðarsýn atvinnulífsins og áherslur ólíkra flokka.
Fundurinn hefst kl. 12 og fer fram í Sykursal Grósku. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.
Fram kemur í tilkynningu frá SA að á fundinum verði ljósi varpað á framtíðarsýn atvinnulífsins og hvernig þær rími við áherslur ólíkra flokka. Þá er m.a. farið yfir niðurstöður oddvitakönnunar.
Umræðustjórar fundarins eru Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Ísak Einar Rúnarsson, forstöðumaður málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins.
Formenn flokka sem taka þátt í umræðum: