Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í gær fyrstu aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda um gervigreind til ársins 2026.
Þar eru tíundaðar þær aðgerðir sem stuðla munu að því að Ísland, í krafti smæðar sinnar, verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapi tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn.
„Gervigreind er ekki fjarlæg framtíð heldur nýtist hún okkur nú þegar til að bæta verulega árangurinn af störfum okkar og mér finnst mikilvægt að nota þessi tímamót til að hvetja alla sem ekki eru farnir að nýta sér einhver gervigreindartól til að gera það nú þegar,“ er haft eftir Áslaugu Örnu í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Veruleikinn muni breyta um 75% allra starfa og samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi muni því að miklu leyti ráðast af því hversu vel okkur tekst að tileinka okkur og nýta gervigreind.
Í greiningu á efnahagslegum tækifærum gervigreindar á Íslandi kemur m.a. fram að um 55% starfa á Íslandi, eða um 130 þúsund manns, eru talin líkleg til að verða fyrir miklum áhrifum af gervigreind en alls verða um 75% starfa fyrir einhverjum áhrifum.
Sýna greiningar einnig að opinberir starfsmenn verji að meðaltali 30% vinnutímans í verkefni sem mætti sjálfvirknivæða með aðstoð gervigreindar.
Árangur Íslands á þessu sviði mun ráðast af tveimur þáttum: annars vegar hversu öflug gervigreind verður og hins vegar hversu fljót almenn upptaka hennar verður á Íslandi.
Verg landsframleiðsla á Íslandi gæti aukist um 0,8 til 6% árlega fram til ársins 2029, allt eftir því hvernig Íslandi mun farnast í þessum tveimur þáttum. Samanlagt jafngildir það 174 til 1.450 milljörðum króna.
Með réttum hvötum geta stjórnvöld stuðlað að framtíð þar sem gervigreind stuðlar að fjölgun starfa og eykur almenn lífsgæði í samfélaginu.
Alþjóðlegar rannsóknir hafa þannig sýnt fram á að meiri efnahagslegur ávinningur sé fólginn í því að nýta gervigreind til að efla starfsfólk frekar en að hafa sjálfvirknivæðingu að leiðarljósi.
Verði sú leið farin við almenna innleiðingu gervigreindar í íslenskt samfélag er áætlað að ávinningurinn verði um 500 milljörðum krónum meiri árið 2038 en ef öll áhersla yrði lögð á að nýta gervigreind til að fækka vinnandi höndum.
Aðgerðaáætlunin byggir á fimm grunnstoðum. Fyrstu þrjár stoðirnar, þ.e. gervigreind í allra þágu, samkeppnishæft atvinnulíf og menntun í takt við tímann, byggja á stefnu Íslands um gervigreind frá árinu 2021. Tveimur stoðum hefur verið bætt við: notkun gervigreindar hjá hinu opinbera og innleiðing gervigreindar í heilbrigðiskerfinu.
Meðal markmiða áætlunarinnar eru: