Fær tæpar 9,7 milljónir

Það munar um að fá 9,7 milljónir.
Það munar um að fá 9,7 milljónir. mbl.is/Karítas

Heppinn miðahafi hlaut fyrsta vinning í lottóútdrætti kvöldsins og fær hann tæpar 9,7 milljónir. Miðinn var keyptur á bensínstöðinni Kletti í Vestmannaeyjum.

Sex hlutu annan vinning og fær hver þeirra 73.900 krónur. Þrír miðanna voru í áskrift, tveir voru keyptir í gegnum lottó-appið og einn var keyptur á Sbarro á Akranesi.

Enginn fékk fyrsta vinning í Jóker kvöldsins, en fjórir voru með annan vinning. Hver þeirra fær 100 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í lottó-appinu, á heimsíðu lottós, í Shellskálanum í Hveragerði og einn var í áskrift. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert