Trúfélag gengur til liðs við Landvernd

Ásatrúarmenn hafa gengið til liðs við Landvernd.
Ásatrúarmenn hafa gengið til liðs við Landvernd. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Samþykkt var á allsherjarþingi Ásatrúarfélagsins að gerast aðildarfélag að Landvernd. Fram kemur í Facebook-færslu frá trúfélaginu þar sem sagt er frá í ályktun að þrír fulltrúar félagsins hefðu setið aðalfund Landverndar fyrir Ásatrúarfélagið fyrr á árinu.

Skýrt var þó tekið fram á þinginu að þessi félagsaðild fæli ekki í sér stuðning við allar áherslur Landverndar. En náttúruverndarmál eru eini málaflokkurinn þar sem Ásatrúarfélagið hefur við vel valin tilefni beitt sér eða tekið afstöðu í pólitískum átakamálum og sérstaklega var rætt um málefni miðhálendisins í tengslum við þessa félagsaðild,“ segir í færslunni.

Ef marka má Grágás

Segir frá því að nokkrar umræður hafi skapast um málið á allsherjarþingi og að þrír hefðu greitt atkvæði gegn ályktuninni sem þó var samþykkt með miklum meirihluta.

„Hálendi Íslands er helgistaður allra Íslendinga og ef marka má Grágás er það sameign þjóðarinnar allt aftur til landnáms. Ásatrúarfélagið kallar eftir því að almenningur fái skýra aðkomu að stjórnun svæðisins og að stjórnsýsla þess verði með þeim hætti að um hana myndist breið þjóðarsamstaða. Engin slík samstaða er fyrir hendi um það tómarúm og stjórnleysi sem virðist nú ríkja á stórum hluta þessa helgistaðar. Þetta ástand má ekki verða viðvarandi. Ásatrúarfélagið kallar eftir umræðu og skýrri sýn um framtíð svæðisins," segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert