Beðnir um að aka varlega um Djúpveg

Ísafjörður.
Ísafjörður.

Vegagerðinni hefur tekist að laga Djúpveg í Ísafjarðardjúpi. Vegfarendur eru þó beðnir um að aka með varúð því grjót og aur gæti runnið úr hlíðum og lent á vegum.

Sömuleiðis er greiðfært frá NV Vestfjörðum og um þjóðveg nr 60, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Vegakafli í Arnarfirði, milli Bíldudalsflugvallar og Dynjandisheiði er aftur á móti lokaður vegna vegaskemmda.

Unnið að hreinsun

Unnið er að hreinsun vegarins um Eyrarhlíð, en þar féllu nokkur aurflóð í gær sem lokuðu veginum. Vegrið skemmdust við flóðin.

Veður er orðið skaplegt á Vestfjörðum og vonir standa til þess að hægt verði að opna veginn um Eyrarhlíð aftur í dag, vonandi um hádegisbilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka