Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 24 ára gömlum karlmanni, Óla Erni Styff. Ólafur er talinn í sjálfsvígshættu.
Er talið að hann sé á gangi frá Fellahvarfi við Elliðavatn og að Úlfarsfelli í Mosfellsbæ, en svæðið kann að vera stærra en svo.
Talið er að hann sé klæddur blárri hettupeysu og dökkum jakka og er með dökkt sítt ár og smá skegg.
Verði einhver var við ferðir Óla er viðkomandi hvattur til að hafa samband við lögreglu í síma 112 samstundis.