Sanngirnisbætur til Hjalteyrarbarna enn í biðstöðu

Barnaheimilið á Hjalteyri var rekið í Rich­ards­húsi á ár­un­um 1972 …
Barnaheimilið á Hjalteyri var rekið í Rich­ards­húsi á ár­un­um 1972 til 1979. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Greiðsla sanngirnisbóta til einstaklinga er dvöldu á vistheimili fyrir börn á Hjalteyri í Arnarneshreppi er enn í biðstöðu þar sem frumvarp til laga um almennar sanngirnisbætur hefur ekki verið samþykkt. 

Ekki hefur því verið hægt að útfæra og ganga frá greiðslu bótanna, að sögn Halldórs Þormars Halldórssonar, umsjónarmanns sanngirnisbóta.

Gert var ráð fyrir 410 millj­óna króna tíma­bundnu fram­lagi til upp­gjörs á sann­girn­is­bót­um vegna mis­gjörða á vistheim­ilinu í fjárlagafrumvarpinu árið 2024, en með lagasetningu stóð til að hægt væri að ganga frá greiðslu bótanna. 

Umfjöllun um málið frestað

Frumvarp um sanngirnisbætur sem Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lagði  fram í október á síðasta ári, er hins vegar enn til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd en umfjöllun um málið var frestað á síðasta fundi nefndarinnar í júní.

Áður hafði Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, lagt fram drög að frum­varpi til laga um sann­girn­is­bæt­ur fyr­ir mis­gjörðir á vistheim­il­inu und­ir lok ársins 2022. 

Þar sagði að frum­varpið gerði kleift að taka á mál­um ein­stak­linga sem urðu fyr­ir var­an­leg­um skaða af illri meðferð eða of­beldi þegar þeir voru vistaðir sem börn á heim­il­inu á ár­un­um frá 1972 til 1979.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert