Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð sem liggur á milli Ísafjarðar og Hnífsdals.
Tafir geta orðið á umferð vegna hreinsunarframkvæmda við veginn, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.
Ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát þegar farið er um veginn.