Boðað verður til kosningafundar um utanríkis- , öryggis- og varnarmál í Veröld, húsi Vigdísar í dag frá kl. 17.00 – 18.30. Að fundinum standa Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Stofnun Stjórnsýslufræða og Stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.
„Á tímum mikilla breytinga og áskorana í alþjóðasamfélaginu er mikilvægt að kjósendur fái skýra mynd af stefnu flokkanna í utanríkis-, varnar- og öryggismálum. Á fundinum munu fulltrúar þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi kosningum taka þátt í pallborðs- umræðum og ræða stefnu sína í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum,“ segir í tilkynningu.
Fulltrúar flokkanna í pallborðsumræðum
Fundarstjórar Bogi Ágústsson, frétta- og dagskrárgerðarmaður RÚV, og Rakel Þorbergsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri RÚV
Dagskrá og nánari upplýsingar má nálgast hér.