Lögreglan lýsir eftir Soffíu

Soffía Pétursdóttir.
Soffía Pétursdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á Norðurlandi vestra lýsir eftir Soffíu Pétursdóttur sem er fædd árið 1941.

Soffía fór að heiman frá sér á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi. Hún er með heilabilun, að því er lögreglan greinir frá.

Hafin er leit að Soffíu. Þeir sem kunna að geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru vinsamlega beðnir um að láta lögregluna á Norðurlandi vestra vita. 

Jafnframt eru íbúar í nágrenninu beðnir um að skoða húsnæði sín og nærumhverfi og hvort Soffía gæti nokkuð leynst þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert