Par flutt á bráðamóttöku eftir árás

Ráðist var á par í Mosfellsbæ í gærkvöld.
Ráðist var á par í Mosfellsbæ í gærkvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Par var flutt á bráðamóttöku í gærkvöld eftir að nokkrir aðilar gengu í skrokk á því í íbúahverfi í Mosfellsbæ í gærkvöld.

Að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni, leikur grunur á að árásin tengist einhvers konar uppgjöri á skuld en parið var með áverka eftir árásina og var flutt til skoðunar á bráðamóttöku.

Valgarður segir ekki liggja ljóst fyrir hversu margir árásarmennirnir voru en lögreglunni hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þeirra. Hann segir að málið sé til rannsóknar hjá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert