Of langt gengið gagnvart friðhelgi

FÍA segir leiðbeiningar ákvæðisins opnar og matskenndar.
FÍA segir leiðbeiningar ákvæðisins opnar og matskenndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) gagnrýnir fyrirhugaða lagabreytingu sem heimilar tollgæslunni að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum ef það leiðir til óhóflegra tafa eða erfiðleika að hann sé viðstaddur. Telur FÍA að hér sé of langt gengið gagnvart friðhelgi einkalífsins.

Í umsögn FÍA um þessa lagabreytingu, sem er að finna í bandormsfrumvarpi sem er til umfjöllunar á Alþingi, segir að rökstuðningur fyrir þessari heimild til tollayfirvalda sé með engu móti nægilegur til að réttlæta svo mikið inngrip sem leitin felur í sér.

„Þá er ljóst að lagaheimildin mismunar áhöfnum gagnvart farþegum þar sem leit í innrituðum farangri þeirra getur ekki verið annað en tímafrek og tafasöm vegna starfa áhafna. Áhafnir gætu þar af leiðandi aldrei verið viðstaddar leitina. Má því segja að hér sé um að ræða ótakmarkaða leitarheimild í farangri áhafna að þeim fjarstöddum sem augljóslega gengur of langt gagnvart friðhelgi einkalífs,“ segir í umsögn FÍA.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka