Potturinn tvöfaldur næst

mbl.is/Karítas

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag en 1. vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins.

Tveir skiptu með sér bónusvinningnum sem færir þeim rúmar 206 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur í Lottó appinu.

Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð en átta miðahafar voru með 2. vinning sem er að venju 100 þúsund krónur.

Fimm miðahafar eru með miðann sinn í áskrift, einn keypti miðann sinn í Krambúðinni á Akranesi, einn í Vídeómarkaðinum í Hamraborg og einn á lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert