Tveir fluttir með þyrlu

Tilkynning barst um vélsleðaslys á Langjökli laust upp úr klukkan …
Tilkynning barst um vélsleðaslys á Langjökli laust upp úr klukkan 16. Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út á slysstað. mbl.is/Sigurður Bogi

Þyrla Landhelgisgæslunnar flytur þessa stundina tvo menn frá Langjökli á Landspítala. 

„Þeim verður komið undir læknishendur hér í borginni,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Ásgeir segir þyrluna hafa lent við Skálpanes en hafði ekki upplýsingar um líðan mannanna tveggja.

Tilkynning barst um vélsleðaslys á Langjökli laust upp úr klukkan 16. Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út á slysstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert