Lögreglan á Suðurnesjum, með aðstoð tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, mun rannsaka eldsvoða sem varð í eggjabúi Nesbús í Vogum á Vatnsleysuströnd í nótt. Nærri sex þúsund hænsnfuglar drápust í brunanum.
Aðgerðum Brunavarna Suðurnesja lauk um áttaleytið í morgun og tók lögregla þá við vettvangi til rannsóknar.
Að sögn vaktstjóra slökkviliðsins er tjónið gríðarlegt og húsið mjög illa farið. Eftir á að meta hvort það verði rifið og umfang tjónsins.
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri hafði ekki upplýsingar um hvort rannsakendur væru farnir inn í húsið er mbl.is hafði samband við hann rétt eftir klukkan 16.