Minning fórnarlamba umferðaslysa var heiðruð víðs vegar um landið í dag. Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember ár hvert minningu þeirra. Í ár var sérstök áhersla lögð á svefn og þreytu undir stýri.
Það sem af er ári hafa þrettán látið lífið í umferðinni.
Viðbragðsaðilar úr ýmsum áttum stóðu að táknrænni minningarathöfn við þyrlupall Fossvogsspítala þar sem þyrla landhelgisgæslunnar lenti og þátttakendur stilltu sér upp fyrir myndatöku með faratækjum og tólum.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála-, efnahags- og innviðaráðherra héldu ávarp á athöfninni.