Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnir nú útkalli vegna umferðarslyss við Þrastarlund á Suðurlandi.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, í samtali við mbl.is.
Þyrlan er nú á leiðinni á staðinn.
Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Á vef Vegagerðarinnar segir að búið se að loka Biskupstungnabraut við Þrastarlund vegna slyssins. Búist er við því að lokunin muni standa í tölverðan tíma.