Húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur

Ríkið mun áfram styðja við Grindvíkinga með sérstökum húsnæðisstuðningi.
Ríkið mun áfram styðja við Grindvíkinga með sérstökum húsnæðisstuðningi. mbl.is/Árni Sæberg

Sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara hefur verið framlengdur.

Frumvarp þess efnis var samþykkt á Alþingi rétt í þessu. 

Stuðningur við Grindvíkinga vegna leiguhúsnæðis átti að renna út 31. desember 2024 en hefur nú verið framlengdur til 31. mars 2025. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert