Félag atvinnurekenda (FA) fagnar eindregið dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Innness ehf., félagsmanns FA, gegn Samkeppniseftirlitinu. Þar reyndi á lögmæti breytinga, sem gerðar voru á búvörulögum síðastliðið vor, þar sem kjötafurðastöðvum var veitt víðtæk undanþága frá samkeppnislögum.
Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að lagabreyting Alþingis hafi ekki lagagildi, enda hafi hún brotið gegn 44. grein stjórnarskrárinnar, þar sem kveðið er á um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja nema það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi, að því er segir í umfjöllun á vef FA.
FA hafði áður sagt, allt frá því að atvinnuveganefnd breytti frumvarpi matvælaráðherra, að þetta væru ólög og vinnubrögðin væru óboðleg.
Bent er á, að í dómnum sé upphaflegt frumvarp matvælaráðherra um breytingu á búvörulögum og breytingar, sem atvinnuveganefnd Alþingis gerði á frumvarpinu, borin saman og segir dómurinn að það blasi við að upphaflega frumvarpið og breytingar nefndarinnar eigi „fátt sameiginlegt annað er þingmálsnúmerið og heitið.“
Fyrra frumvarpið hafi átt að efla hagsmuni bænda, en breytingin eins og hún var samþykkt sé í þágu afurðastöðva. Ólíkir aðilar njóti því góðs af.
Þá bendir FA enn fremur á, að dómurinn komist sömuleiðis að þeirri niðurstöðu að í frumvarpinu, eins og atvinnuveganefnd hafi breytt því, séu undanþágur frá samkeppnislögum allt aðrar og miklu meiri en í upphaflega frumvarpinu.
Í frumvarpinu hafi í upphafi verið gert ráð fyrir að bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu afurðastöðva, sem og samrunareglur og -eftirlit samkeppnisréttar myndu gilda fullum fetum, en það eigi ekki við eftir breytingar atvinnuveganefndar. Bændur hafi einnig átt að njóta góðs af upphaflega frumvarpinu. „Afurðastöðvar njóta á hinn bóginn góðs af eins og Alþingi afgreiddi frumvarpið og það án tillits til þess hvort þær stöðvar séu reknar af bændum,“ segir í dómnum.
Niðurstaða héraðsdóms hafi verið að sú ályktun blasi við að að „í raun hlaut frumvarpið, sem útbýtt var á Alþingi 14 .nóvember 2023, einungis eina umræðu á Alþingi sem fram fór 21. nóvember sama ár. Annað eðlisólíkt frumvarp í samræmi við tillögur atvinnuveganefndar var svo rætt við tvær umræður, 20. og 21. mars 2024. Áskildum fjölda umræðna samkvæmt 44. gr. stjórnarskrárinnar var þannig ekki náð. Sú breyting sem gerð var á búvörulögum og samþykkt á Alþingi 21. mars og gefin út sem lög nr. 30/2024, var ekki sett á stjórnskipulegan hátt þar sem hún stríðir gegn stjórnarskrá og hefur af þeim sökum ekki lagagildi.“
„Þessi dómsniðurstaða kemur ekki á óvart. Félag atvinnurekenda hefur sagt, allt frá því að atvinnuveganefnd breytti frumvarpi matvælaráðherra, að þetta væru ólög, vinnubrögðin óboðleg og matið á áhrifum lagabreytingarinnar í raun ekkert, en ljóst er að hún hefur afdrifarík áhrif á samkeppni og skaðar hagsmuni verslunar, neytenda og bænda. Viðvörunum samtaka fyrirtækja, launþega og neytenda var ekki sinnt heldur málið keyrt í gegnum þingið og þeir þingflokkar, sem stóðu að þessum forkastanlegu vinnubrögðum, sitja nú í súpunni,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, í tilkynningunni.
Hann segir blasa við að þeir samningar afurðastöðvanna sem gerðir hafi verið á grundvelli lagabreytingarinnar hafi nú ekkert gildi. Þá séu lögin sjálfkrafa úr gildi fallin miðað við þessa dómsniðurstöðu.