Tæp 2% stofnsins brunnu

Tjónið á hænsnabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd.
Tjónið á hænsnabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd. mbl.is/Hákon

Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af yfirvofandi eggjaskorti á Íslandi vegna nýrrar reglugerðar sem skipar hænsnabændum að breyta hefðbundnu búreldi í lausagönguhús og þá einnig í ljósi brunans í hænsnabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd, segir Halldóra Kristín Hauksdóttir, formaður búgreinadeildar eggjabænda.

mbl.is/Hákon

„Auðvitað harmar maður það að þarna drepist fuglar en samkvæmt mínum upplýsingum eru þetta tæp 2% af varpstofninum hér á innlendum markaði,“ segir Halldóra.

Eitthvað hafa birgðir eggja í verslunum minnkað undanfarið en það má rekja til ofangreindra breytinga sem bændur hafa þurft að leggjast í vegna nýrrar reglugerðar. 

mbl.is/Hákon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert