Þrír liggja alvarlega slasaðir á Landspítalanum eftir umferðarslys á Biskupstungnabraut, skammt frá Þrastarlundi í áttunda tímanum í gærkvöld.
Þar varð harður árekstur milli tveggja bíla og voru þrír fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur og þrír minna slasaðir með sjúkrabifreiðum á heilbrigðisstofnanir.
Að sögn Þorsteins Kristinssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi, liggur ekki ljóst fyrir um tildrög slyssins en málið til rannsóknar hjá lögreglunni. Að hans sögn var um harðan árekstur að ræða en veður var gott þegar áreksturinn átti sér stað.