Blint og skefur í skafla fyrir austan

Snjómokstur á Fjarðarheiði í apríl síðastliðnum.
Snjómokstur á Fjarðarheiði í apríl síðastliðnum. Ljósmynd/Ómar B.

Talsverður lausasnjór hefur fallið á Austurlandi. Seint í kvöld bætir heldur í vind og þá með skafrenningi. Eins verður talsverð snjókoma um tíma. 

Blint verður og skefur í skafla í nótt og fyrramálið, þar á meðal á Fagradal, Fjarðarheiði og á Möðrudalsöræfum, að því er segir í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert