Gerir Viðreisn kröfu um aðildarviðræður við ESB?

Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Eiríkur Bergmann rýna í tölur …
Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Eiríkur Bergmann rýna í tölur og spá í spilin. Þorgerður Katrín stendur fyrir máli sínu og ræðir stefnu Viðreisnar í málaflokkum af ýmsu tagi, allt frá útlendingamálum til gjaldmiðilsmála.

Nýjasti gestur Spursmála er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Þar verður hún meðal annars spurð út í fullyrðingar frambjóðenda flokksins þess efnis að flokkurinn geri aðildarviðræður að ESB að skilyrði.

Þátturinn er sýndur í spilaranum hér að neðan klukkan 14 og er öllum aðgengilegur.

Fylgið fer með himinskautum

Flokkur Þorgerðar Katrínar fer mikinn í skoðanakönnunum þessa dagana og margt sem bendir til þess að hún verði í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndunarviðræðum að loknum kosningum 30. nóvember. Hvert stefnir hugur hennar?

Það kemur í ljós í Spursmálum í dag. 

Hverjar eru líkurnar?

Í þættinum er einnig rætt Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í tölfræði við Háskóla Íslands en hann hefur í félagi við nokkra samstarfsmenn komið upp kosningaspálíkani á heimasíðunni www.metill.is. Þar er spáð fyrir um hvernig kosningarnar muni fara þann 30. nóvember.

Honum til fulltingis í þættinum er Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði. Hann rýnir meðal annars í tölfræðina frá Brynjólfi og fer yfir stöðuna í pólitíkinni almennt.

Fylgist með á mbl.is klukkan 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert