Þeir sem hafa selt Fasteignafélaginu Þórkötlu hús sín í Grindavík geta nú gert samning um afnot af húsinu og greiða þá aðeins fyrir hita og rafmagn.
Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning við seljendur hvað varðar umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Forsenda er þó að öruggt sé talið að vera í eigninni og á lóðinni í kring.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu.
„Með því að gera hollvinasamning ákveður „hollvinur“ að leigja aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun „gætt þess“,“ segir í tilkynningunni.
Meðan samningurinn er í gildi er því gengið út frá því að hollvinur heimsæki eignina og sinnir Þórkatla því ekki hefðbundnu eftirliti á meðan, nema hollvinur óski eftir því sérstaklega. En tekið er fram að óheimilt sé að dvelja í fasteigninni næturlangt. Einnig er óheimilt að hafa þar fasta búsetu.
Kostnaður við hollvinasamning verður tvíþættur. Annars vegar borgar hollvinur mánaðarlegan kostnað af rafmagni og hita á fasteigninni. Hins vegar greiðir hollvinur 30.000 kr. einskiptis umsýslugjald þegar samningurinn er gerður.
Alls hafa 952 umsóknir um kaup á íbúðarhúsnæði borist, en 914 af þeim hafa verið samþykktar. Þar af eru 46 umsóknir þar sem félagið fellst á að tímabundnar aðstæður hafi skýrt skráningu á lögheimili annars staðar en í hinni seldu eign. Þegar hefur verið gengið frá 907 kaupsamningnum. Þá hefur afhending farið fram í 823 tilvikum og 785 afsöl verið undirrituð.
Heildarfjárfesting félagsins í þeim 907 eignum sem gengið hefur verið frá til þessa eru um 69,5 milljarðar króna. Þar ef eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur um 48,3 ma. kr. og yfirtekin húsnæðislán um 21,2 ma. kr.