Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur

Dómurinn var kveðinn upp fyrir tæpri viku.
Dómurinn var kveðinn upp fyrir tæpri viku. mbl.is/Iðunn

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni með því að slá hana ítrekað í rassinn og í eitt skiptið nuddað beran rass hennar, læri og innanvert læri. 

Er manninum gert að greiða stúlkunni miskabætur upp á 1.250.000 krónur með vöxtum. 

Ól hana upp sem eigin dóttur

Maðurinn kvaðst hafa verið hluti af lífi stúlkunnar frá því að hún var fimm ára gömul. Kvaðst hann hafa alið hana upp sem eigin dóttur.

Í skýrslutöku lögreglu sagði stúlkan að samband hennar og stjúpföður síns alltaf hafa verið eðlilegt en að það hefði tekið breytingum því eldri sem hún hefði orðið.  

Sömuleiðis lýsti stúlkan því að stjúpfaðir hennar hefði ítrekað rasskellt hana og vinkonur sínar. Það hefði henni þótt óþægilegt en ekki viljað segja neitt fyrr en að vinkona hennar hefði talað við hana og beðið hana um að biðja hann að hætta. 

Hún hefði þá rætt við móður sína sem ræddi við manninn. Hann hætti að rassskella þær í smástund en tók aftur upp á því um mánuði síðar. 

Maðurinn kvaðst aldrei hafa rasskellt brotaþola en kannaðist við að hafa stundum „danglað“ í rass hennar og vinkvenna hennar með handabakinu.  

Stúlkan lýsti því einnig að maðurinn hefði haft við hana kynferðislegt tal í eitt skipti er hann rasskellti hana. Á hann að hafa viðhaft ummælin: „Æj nei djók, þú gætir fílað þetta.“

Vinkona stúlkunnar var vitni að umræddu atviki.

Nuddaði stúlkuna vegna verkja í baki

Fyrir dómi lýsti stúlkan að hún hefði eitt kvöld kvartað undan verkjum í baki eftir langan vinnudag. Maðurinn hefði þá boðist til að nudda hana, sem henni þótti ekki óeðlilegt enda hefði hann oft nuddað hana. Hann hefði hins vegar sótt kókosolíu, sem henni þótti skrýtið enda var það ekki venjan. 

Stúlkan kveðst hafa sagt við manninn að hún kenndi til í ofanverðu bakinu, á milli herðablaðanna. Hann hefði nuddað hana en fært hendur sínar neðar og að rassi hennar, nuddað á henni fæturna, innanverð lærin, lyft stuttbuxum hennar og nuddað upp á rasskinnar. 

Fyrir dómi lýsti maðurinn að hann hefði nuddað stúlkuna að hennar frumkvæði. Hann lýsti því að hann væri vel að sér í líffærafræði, enda lært nudd á sínum yngri árum, án þess að hafa klárað námið. Kvaðst hann hafa byrjað á að nudda axlir stúlkunnar og unnið sig niður mjóbakið og að spjaldhryggnum. Hefði hann þá fært sig niður á lærvöðva og nuddað niður að hné og kálfa. 

Þá lýsti maðurinn því hvernig hann hefði nuddað stóra vöðvann neðan við spjaldhrygg „maximus“ fyrir ofan rassinn. Kvaðst hann ekki hafa nuddað stúlkuna nálægt kynfærum eða rassi, né við nára. 

Vinkona stúlkunnar var vitni að umræddu atviki. Hún lýsti því fyrir skýrslutöku lögreglu að sér hefði þótt atvikið afar skrýtið og staðfesti frásögn stúlkunnar. 

Orð gegn orði

Í niðurstöðu dómsins segir að ljóst sé að málið standi orð gegn orði. 

„Við mat á trúverðugleika framburðar aðila verður ekki fram hjá því litið að ákærði, sem kveðst vera vel að sér í líffærafræði, neitar að hafa nuddað rass brotaþola, en því þó lýst sjálfur fyrir dómi að hafa nuddað hana á stærsta vöðva líkamans, „maximus-vöðva“, sem liggi við spjaldhrygg. 

Alkunna er að stóri rassvöðvinn tengist spjaldhrygg að ofanverðu og lærlegg að neðanverðu og ber latneska heitið gluteus maximus. Er þannig innbyrðis ósamræmi í framburði ákærða hvað þetta varðar þótt hann viðurkenni ekki að hafa nuddað rass brotaþola,“ segir meðal annars í dómnum. 

Maðurinn hefur borið fyrir sig að háttsemin hafi ekki verið af kynferðislegum toga og að hann hafi ekki haft ásetning til að brjóta gegn brotaþola. 

Dómurinn féllst ekki á það. 

„Er það mat dómsins að háttsemi ákærða falli undir skilgreiningu hegningarlaga á kynferðislegri áreitni, sem áður er lýst, en gögn málsins bera enn fremur með sér að ákærði hafi í einhver skipti viðhaft kynferðislegt tal við brotaþola [...]. Er að mati dómsins hafið yfir skynsamlegan vafa að háttsemi ákærða hafi verið af kynferðislegum toga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert