Umferðarslys varð á gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar í Reykjavík í kvöld þar sem rafskúta og bíll skullu saman.
Þetta staðfestir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
Ökumaður rafskútunnar var með meðvitund er sjúkrabíl bar að garði og hefur verið fluttur til skoðunar á slysadeild.
Ekki er meira vitað um líðan ökumannsins og ekki hafa fengist frekari upplýsingar að sinni.
Miklar umferðartafir hafa hlotist af slysinu.