Í dag er spáð norðlægri átt, 3-10 metrum á sekúndu, en norðvestan 8-15 m/s austast fyrripart dags.
Dálítil él verða á Norður- og Austurlandi, annars bjart að mestu.
Norðaustan 5-13 m/s verða á morgun og bjart með köflum, en stöku él á víð og dreif. Bætir heldur í ofankomu norðaustanlands um kvöldið.
Frost verður á bilinu 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.