Töluverðar tafir verða á afgreiðslu ágreiningsmála milli kaupenda og seljenda vöru og þjónustu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, sem úrskurðar í slíkum ágreiningsmálum.
Vegna mikillar fjölgunar mála sem nefndinni berast og því að ekki verði fleiri fundir á árinu eru tafirnar fyrirséðar samkvæmt tilkynningunni.