Breiðfylking heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi stendur fyrir opnum fundi í hádeginu í dag um málefni heilbrigðisþjónustunnar.
Öll framboð sem bjóða fram lista á landsvísu í komandi þingkosningum munu senda fulltrúa. Fundurinn hefst kl. 12.00 og verður haldinn í sal Sjúkraliðafélags Íslands á Grensásvegi 16.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan. Fundarstjóri er Eyrún Magnúsdóttir.
Breiðfylkingin samanstendur af Læknafélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sjúkraliðafélagi Íslands, Félagi sjúkraþjálfara, Sálfræðingafélagi Íslands, Félagi lífeindafræðinga, FÍN, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Iðjuþjálfafélagi Íslands, Ljóðsmæðrafélagi Íslands, Þroskaþjálfafélagi Íslands, Tannlæknafélagi Íslands, Visku, Félagi geislafræðinga á Íslandi og Lyfjafræðingafélagi Íslands, að því er segir í tilkynningu.
Á fundinum verða til svara Alma Möller frá Samfylkingunni, Arnar Þór Jónsson frá Lýðræðisflokknum, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum, Guðmundur Ingi Guðbrandsson frá Vinstri grænum, Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn, Jón Ívar Einarsson frá Miðflokknum, Kolbrún Baldursdóttir frá Flokki fólksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir frá Sósíalistaflokknum, Willum Þór Þórsson frá Framsóknarflokknum og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir frá Pírötum.
Markmið fundarins er að stuðla að upplýstri umræðu um heilbrigðismál til að afstaða allra framboða til þessa stóra málaflokks liggi fyrir og hvernig þau munu koma sínum stefnumálum í framkvæmd.