Sex fengu 615 milljónir

Einhvers staðar var fagnað hátíðlega í kvöld.
Einhvers staðar var fagnað hátíðlega í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sex miðahafar voru með annan vinning í EuroJackpot er dregið var í kvöld og hljóta þeir rúmar 615 milljónir króna hver.

Voru fjórir miðanna keyptir í Þýskalandi en hinir í Noregi og á Ítalíu.

Enginn hlaut fyrsta vinning í þetta sinn.

Íslendingur hlaut veglegan vinning

Átta miðahafar voru með þriðja vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 43,5 milljónir króna.

Voru fjórir þeirra miða keyptir í Þýskalandi en hinir í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og á Spáni.

Þá hlaut heppinn Íslendingur, sem var með fjórða vinning, 773.590 krónur í sinn hlut og var miðinn keyptur á lotto.is

Enginn var með allar tölur réttar og í rétti röð í Jókernum en var einn með annan vinning og fær 100.000 krónur í vinning. Var sá miði í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert