Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu.
Í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að um sé að ræða þjófnaði á nokkur hundruð kílóum af kjötvörum, fatnaði, raftækjum o.fl., en verðmæti þess hleypur á milljónum króna.
Mikið af þýfinu fannst á dvalarstað mannsins, en nú er unnið að því að koma hlutunum aftur í réttar hendur og mun það taka einhvern tíma.
Lögreglan tekur fram að upplýsingasími lögreglu er 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.