Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál í Hlíðunum.
Er lögregla kom á vettvang þá var einn einstaklingur æstur og hafði í hótunum við nærstadda.
Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var með öllu óviðræðuhæfur. Hann var vistaður í fangaklefa sökum ástands.
Þá voru voru höfð afskipti af erlendum einstaklingi sem gat ekki framvísað lögmætum skilríkjum, né gert grein fyrir dvöl sinni á landinu.
Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Mál hans er nú í rannsókn.