Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók sporið með gestum á viðburði Ungra Miðflokksmanna í Grósku í gærkvöldi.
Í tilkynningu frá Miðflokknum segir að á fimmta hundrað manns hafi látið sjá sig á viðburðinum.
„Maður er hálf orðlaus yfir þeim fjölda sem mætti hérna í kvöld. Við vissum ekkert við hverju við áttum að búast, enda nýbúin að stofna ungliðahreyfinguna, en okkur tekst greinilega vel að ná til yngri kjósenda. Þegar mest var voru um 300 inni í salnum á sama tíma og geggjuð stemning, síðan voru margir sem voru að flakka á milli og held ég það það megi segja að hátt upp í 500 einstaklingar hafi lagt leið sína hingað í kvöld,“ er haft eftir Antoni Sveini McKee, formanni Freyfaxa – ungliðahreyfing Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Anton Sveinn og Sigmundur Davíð fluttu ræður og héldu Séra Bjössi, Húbba Búbba og DJ Ökull stemningunni uppi á meðan viðburðinum stóð, Marinó Máni Mabazza var kynnir.
@ungir_xm Takk fyrir geggjað kvöld! 😮💨 #fyp #fyrirþig #kosningar2024 #kosningar #miðflokkurinn ♬ original sound - Ungir Miðflokksmenn