Björgunarsveit Skagastrandar hefur verið kölluð út vegna bíla sem eru fastir á Þverárfjallsvegi á milli Sauðárkróks og Skagastrandar.
Þetta er haft eftir varðstjóra neyðarlínunnar.
Um er að ræða fimm til sex bíla og var mikill skafrenningur á veginum sem Vegagerðin hefur nú lokað.