Hjúkrunarfræðingar samþykkja samning

Ljósmynd/Colourbox

Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðslan fór fram dagana 20. til 25. nóvember.

Á kjörskrá voru 2.870, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun samkvæmt kjarasamningi félagsins við ríkið. Alls tóku 81,95% þátt í atkvæðagreiðslunni, að því er segir í tilkynningu

  • Já sögðu - 85,63%
  • Nei sögðu - 13,61%
  • Tóku ekki afstöðu - 0,77%
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert