Sekt Hagkaupa lækkuð um helming

Hagkaup.
Hagkaup. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur lækkað stjórnvaldssekt sem var lögð á Hagkaup fyrir villandi auglýsingar úr 850 þúsund krónum í 400 þúsund.

Neytendastofa lagði sektina á Hagkaup vegna auglýsinga síðasta sumar um „Tax Free“ afslátt vegna þess að annars vegar vantaði upplýsingar um prósentuhlutfall lækkunarinnar í auglýsingarnar og hins vegar var hlutfallið tilgreint í smáu og ólæsilegu letri, að því segir í úrskurði áfrýjunarnefndar.

Hagkaup kærði ákvörðun Neytendastofu í október í fyrra.

Formgalli á málsmeðferð

„Áfrýjunarnefnd felldi úr gildi hluta ákvörðunarinnar vegna formgalla á málsmeðferð sem leiddi til þess að Hagkaup gat ekki tjáð sig um efni málsins. Sá hluti ákvörðunarinnar snéri að auglýsingum á samfélagsmiðlum þar sem hlutfallið kom ekki fram var því felldur úr gildi,“ segir í úrskurðinum.

Þar segir einnig að nefndin hafi staðfest þann hluta ákvörðunarinnar er sneri að auglýsingum þar sem prósentuafslátturinn hafi verið tilgreindur með óskýrum og ólæsilegum hætti.

„Í ljósi þess að hluti ákvörðunarinnar var felldur úr gildi taldi áfrýjunarnefndin tilefni til að lækka stjórnvaldssektina í 400.000 kr,“ segir í úrskurðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert