Ungur ökumaður keyrði bifreið út á ísilagt vatn

Einn var handtekinn í Grafarholti, grunaður um líkamsárás og eignaspjöll.
Einn var handtekinn í Grafarholti, grunaður um líkamsárás og eignaspjöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var handtekinn í Grafarholti í gær grunaður um líkamsárás og eignaspjöll. Viðkomandi var fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Lögreglu var tilkynnt um bifreið á ísilögðu vatni í Árbæ. Ökumaðurinn var ungur og ræddi lögreglan við hann um þær hættur sem fylgja slíku athæfi.

Þá var ökumaður handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir umferðarslys í Kópavogi en hann reyndist vera undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert