Einn var handtekinn í Grafarholti í gær grunaður um líkamsárás og eignaspjöll. Viðkomandi var fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Lögreglu var tilkynnt um bifreið á ísilögðu vatni í Árbæ. Ökumaðurinn var ungur og ræddi lögreglan við hann um þær hættur sem fylgja slíku athæfi.
Þá var ökumaður handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir umferðarslys í Kópavogi en hann reyndist vera undir áhrifum áfengis.