Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hefur samþykkt að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum atvinnulóða við götuna Iðjuslóð á Flúðum.
Þetta segir í tilkynningu frá Hrunamannahreppi.
Kemur þar fram að gatnagerðargjöld munu við þessa ákvörðun verða á bilinu um 3 til 6 milljónir króna á lóð en fer gjaldið eftir heimiluðu byggingarmagni á hverri lóð fyrir sig.
Þá gildir afslátturinn af öllum lóðum við götuna sem úthlutað er til 1. september 2025.
Kemur fram að í greinargerð með tillögunni komi fram að farið hafa verið í gatnagerð við Iðjuslóð fyrir allmörgum árum en fyrirhugað er að ráðast í yfirborðsfrágang götunnar á næsta ári.
„Við Iðjuslóð hafa þegar risið tvö hús. Nýverið var þremur lóðum við götuna úthlutað vegna byggingar björgunarmiðstöðvar og einni annarri lóð var nýlega úthlutað. Enn er því óúthlutað sjö lóðum við Iðjuslóð. Eru lóðirnar allar á bilinu 1.586m2–2.400m2 að stærð en nýtingarhlutfall á lóðunum skal vera á bilinu 0,4-0,6.,“ segir í tilkynningunni.
Segir þar enn fremur að með því að veita ríflegan afslátt af gatnagerðargjöldum sé verið að veita húsbyggjendum og fyrirtækjaeigendum umtalsvert betri kjör á byggingarlóðum en áður hefur tíðkast í þeirri von að afslátturinn glæði áhuga athafnafólks á Flúðum sem vænlegum kosti fyrir uppbyggingu fyrirtækja og atvinnulífs.