Verkfalli lækna aflýst á síðustu stundu

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Colourbox

Fyrstu lotu verkfalla lækna, sem átti að hefjast á miðnætti, var aflýst seint í gærkvöld eftir að samkomulag náðist um helstu atriði nýs kjarasamnings. Enn á þó eftir að ganga frá einstökum atriðum í samningnum og ráðgert var að samningaviðræður héldu áfram fram á nótt.

„Það hefur þokast vel í samkomulagsátt í dag en þetta er bara það viðamikið verkefni að við þurfum aðeins meiri tíma. Við berum vonir til þess að þetta náist sem fyrst. Þetta er ekki alveg komið þangað að við getum skrifað undir í kvöld,“ sagði Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands. Þau atriði sem út af standa að hennar sögn lúta að betri vinnutíma lækna. „Þetta snýst um kjör á vöktum og fleiri atriði, en það er það helsta sem við erum aðallega að ræða núna. Þetta er allt hluti af betri vinnutíma en okkur greinir svolítið á þarna.“

Hún leyfir sér þó að vera bjartsýn á að samkomulag náist um nýjan kjarasamning og að hægt verði að skrifa undir hann á næstu dögum. „Ef maður ætlar að vera bjartsýnn þá horfir þetta ágætlega við, en áfram eins og alltaf, með þessum fyrirvörum. Það er ekkert búið fyrr en það er búið.“

Víðtækar aðgerðir

Verkfallsaðgerðir lækna áttu að ná til lækna sem starfa á Landspítalanum og á öðrum heilbrigðisstofnunum um allt land, ásamt heilsugæslustöðvum sem reknar eru af ríkinu. Ráðgert var að verkfallið stæði fram til hádegis alla daga fram á fimmtudag með lágmarksmönnun, eins og er um helgar og á rauðum dögum. Af þeim sökum hafði þeim sem áttu bókaða tíma hjá læknum á Landspítalanum í Fossvogi til að mynda verið gert viðvart um að tímum yrði aflýst í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert