Maður leitaði á lögreglustöð 3 með talsverða áverka eftir líkamsárás. Viðkomandi var fluttur á slysadeild og er málið nú í rannsókn.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Alls voru 56 mál bókuð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.
Í miðborginni var tilkynnt um rúðubrot í fyrirtæki. Málið er nú í rannsókn.
Tilkynnt var um slys á vinnusvæði í Hafnarfirði. Var einn fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsl.
Þá voru nokkrir ökumenn sektaðir ýmist vegna farsímanotkunar undir stýri eða of hraðan akstur. Þá var einn handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.