Samfylkingin heldur opinn fund í Iðnó í dag þar sem Kristrún Frostadóttir, formaður flokksins, flytur lokaskilaboð sín til þjóðarinnar fyrir alþingiskosningarnar á föstudaginn.
Fundurinn í dag hefst klukkan 18 en húsið opnar hálftíma fyrr, að því er kemur fram í tilkynningu.
Á meðal þeirra sem stíga á svið og skemmta gestum verður popparinn Sverrir Bergmann Magnússon, sem er sjálfur í framboði fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi.
Beint streymi frá fundinum: