Á morgun klukkan 14 verða sýndar leiðtogakappræður í beinni útsendingu frá Hádegismóum, höfuðstöðvum Morgunblaðsins. Í upphafi kappræðna eru kynntar glóðvolgar niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem Prósent gerir fyrir Morgunblaðið og mbl.is.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson beina spurningum til frambjóðendanna og leitast við að hafa umræður markvissar og hvassar.
Beittustu viðtölin í aðdraganda kosninga hafa verið á vettvangi Spursmála á mbl.is og þess má vænta að umræður í kappræðunum verði heitar.
Frambjóðendum verður skipt upp í tvo hópa svo frambjóðendum gefist nægur tími til þess að fara yfir áherslumál sín og rökræða hin ýmsu mál.
Íslendingar ganga að kjörborðinu á laugardaginn og flokksleiðtogarnir kappkosta nú við að sannfæra kjósendur um af hverju þeirra tiltekni flokkur sé traustsins verður.
Ljóst er að enginn má láta þessar kappræður fram hjá sér fara klukkan 14 á morgun.