Gul viðvörun annað kvöld

Vindaspá klukkan 20 annaðkvöld.
Vindaspá klukkan 20 annaðkvöld. Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun gengur í gildi víðs vegar um land á morgun vegna suðaustan hríðar. Búast má við skafrenningi og lélegum aksturskilyrðum. Færð gæti spillst, einkum á fjallvegum.

Klukkan 14 á morgun tekur í gildi viðvörun á Suðurlandi og Faxaflóa.

Klukkan 15 gengur í gildi gul viðvörun á Miðhálendinu þar sem búast má við 20-28 m/s og snjókoma. 

Klukkan 18 annað kvöld gengur síðan í gildi viðvörun á höfuðborgarsvæðinu þar sem búast má við 13-20 m/s og snjókomu. 

Klukkan 19 og 20 bætast síðan Breiðafjörður, Vestfirðir og Suðausturland við. 

Viðvörunin gengur úr gildi klukkan þrjú aðfaranótt þriðjudags. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert