Þakkar Kára Stefánssyni aðstoðina

Snorri Másson segist ósegjanlega þakklátur fyrir stuðninginn sem rataði í …
Snorri Másson segist ósegjanlega þakklátur fyrir stuðninginn sem rataði í kjörklefann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snorri Másson, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir tímann frá því að ígrunduð skyndiákvörðun um að bjóða sig fram á þing hafi verið tekin hafa verið stórbrotið og hálfklikkað ævintýri.    

„Nú þegar þetta er í höfn er mér efst í huga djúpt þakklæti til fjölskyldu minnar, Kára Stefánssonar og allra annarra sem hafa, viljandi eða óviljandi, lagt mér lið í þessari miklu baráttu,“ segir Snorri á Facebook.

Í aðdraganda kosninganna skrifaði Kári opið bréf til Snorra þar sem hann hnýtti í Snorra fyr­ir að gera at­huga­semd­ir við um­fjöll­un Rík­is­út­varps­ins um Miðflokk­inn.

Ósegjanlega þakklátur

Snorri segist í dag ósegjanlega þakklátur fyrir stuðninginn sem rataði í kjörklefann.

„En þessi barátta er rétt að hefjast. Ný hreyfing er orðin til í íslenskum stjórnmálum og við höfum mikið verk að vinna. Þetta er alveg svakalega, svakalega spennandi,“ segir Snorri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert