„Við erum með tilraunaverkefni þar sem Finnbogastaðaskóli verður skólasel frá Grunnskóla Drangsness,“ segir Ásta Þórisdóttir, skólastjóri á Drangsnesi.
Nýlega fluttu tvær fjölskyldur með börn á skólaaldri til Trékyllisvíkur á Ströndum og verða tvö börn í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi í vetur. Samanlagt eru 12 nemendur í báðum skólum, því að aðeins tíu nemendur eru á Drangsnesi í tveimur deildum, yngri og eldri deild.
Ekkert skólastarf hefur verið í Finnbogastaðaskóla frá árinu 2018, en leiðbeinandinn Bjarnheiður Júlía Fossdal sér um kennslu barnanna í skólanum, með stuðningi frá Drangsnesi.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.