Rétt fyrir klukkan 2 í nótt varð jarðskjálfti í suðaustanverðri Bárðarbunguöskju. Samkvæmt fyrstu útreikningum Veðurstofu Íslands var skjálftinn 3,6 að stærð en hún verður endurmetin aftur í dag og er áætlað að hann sé stærri.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni urðu nokkrir minni skjálftar fyrir og eftir en engin merki eru um óróa.
Síðast varð skjálfti að þessari svipaðri stærð 27 nóvember sl. en 6 október varð skjálfti að stærðinni 5.
Frá áramótum hafa 23 skjálftar, 3 að stærð eða stærri, orðið á þessum slóðum, sá stærsti 5,4 þann 21. apríl sl. Er hann stærsti skjálftinn frá goslokum í febrúar 2015 en jarðskjálftar eru algengir í Bárðarbungu.