Mögulega tíðinda að vænta í dag

Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eru nú …
Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eru nú í óða önn við að skrifa stjórnarsáttmálann. mbl.is/Eyþór Árnason

Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins munu í dag halda áfram vinnu við að skrifa stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Sú vinna gengur vel að sögn Ingileifar Friðriksdóttur, aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar.

Mögulega verður einhverra tíðinda að vænta síðar í dag um það hvenær stjórnarsáttmálinn verður kynntur, en formennirnir hafa talað á þeim nótum að ný ríkisstjórn verði kynnt fyrir áramót.

Fátt um svör hjá þingmönnum

Erfiðlega hef­ur gengið að fá upp­lýs­ing­ar um stöðu viðræðnanna að und­an­förnu en þann 3. des­em­ber ákváðu flokk­arn­ir að hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræður.

Í gær og í fyrradag var haft sam­band við alla þing­menn fyrr­nefndra flokka, 36 tals­ins, en lítið var um svör um gang viðræðnanna. Af þeim sem svöruðu var lítið sagt annað en að viðræður gengju vel fyr­ir sig en svo var vísað á for­menn­ina.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, sagði viðræðurnar þó ekki stranda á neinu.

„Það er ekk­ert sem þetta er að stranda á í augna­blik­inu, að mér vit­andi,“ sagði hann, spurður hvort að það væru ein­hver óleyst mál sem gætu komið í veg fyr­ir stjórn.

„Það er bara verið að taka sér góðan tíma í að vinna þetta allt sam­an,“ sagði  Ingvar jafnframt og tók fram að hann bæri fullt traust til Þor­gerðar til að leiða þetta til lykta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert