Lokanir í miðbænum á Þorláksmessu

Friðarganga verður gengin að venju á Þorláksmessu og verður umferð …
Friðarganga verður gengin að venju á Þorláksmessu og verður umferð stöðvuð á meðan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stór hluti Kvosarinnar, Laugavegar og nærliggjandi götum verður lokað fyrir akandi umferð á Þorláksmessu, 23. desember. 

Lokanirnar eru í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu og verða í gildi frá klukkan 14.00 til 00.00. 

Aðeins verður hægt að komast út af svæðinu um eftirfarandi gatnamót:

Barónsstíg við Laugaveg

Þingholtsstræti við Bankastræti

Hverfisgötu við Ingólfsstræti

Hverfisgötu við Frakkastíg

Pósthússtræti við Hafnarstræti

Umferð stöðvuð vegna Friðargöngu

Þá verður Friðargangan venju samkvæmt á Þorláksmessu og má búast við töfum á umferð á gatnamótum Snorrabrautar og Laugavegar og Lækjargötu og Bankastrætis í tengslum við hana.

Fólk safnast saman klukkan 17.45 á nýja Hlemmtorginu (á milli Hlemms og Snorrabrautar). Gangan fer af stað klukkan 18.00 og gengið sem leið liggur á Austurvöll þar sem fer fram stuttur fundur.

Lögreglan mun stöðva umferð á meðan að gangan fer yfir Snorrabraut og þegar gangan fer yfir  Lækjargötu.

kort/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert