Vetrarsólstöður verða í dag, laugardaginn 21. desember, nánar tiltekið klukkan 09:20:30.
Þetta er stundin þegar sólin stendur kyrr eitt augnablik en byrjar svo að hækka á lofti. En bara hænufet í fyrstu, eins og það er oft orðað.
Í Íslenska almanakinu segir að nafnið sólstöður vísi til þess að sólin séð frá jörðu stendur kyrr á himni, það er hún hættir að hækka eða lækka á lofti og gerist það á sömu stundu alls staðar á jörðinni.
Sólstöður er því hægt að tímasetja hárnákvæmt.